Skip to content

Domus barnalæknar

DOMUS BARNALÆKNAR er ný læknastöð fyrir börn og unglinga í Urðarhvarfi 8 í Kópavogi sem stofnuð var af barnalæknum sem starfað hafa í Domus Medica síðasta aldarfjórðunginn. Móttaka sjúklinga hófst þann 3. janúar 2022 og vaktþjónusta barnalækna sem lengi hefur verið starfrækt utan hefðbundins dagvinnutíma í Domus Medica er nú í Urðarhvarfi 8. Um það bil 35 barnalæknar, sérfræðingar í almennum barnalækningum og hinum ýmsu undirsérgreinum barnalækninga, starfa hjá Domus barnalæknum auk háls-, nef og eyrnalækna og barnaskurðlæknis. Heildarfjöldi lækna á stöðinni er því liðlega 40.

Tímapantanir í síma 563-1010 alla virka daga frá kl. 08:00 til 22:00 og frá kl. 10:30 til 15:00 um helgar. Opið er alla daga ársins.