Skip to content
Home » Sigurður Sverrir Stephensen

Sigurður Sverrir Stephensen

Sérfræðingur í almennum barnalækningum og hjartalækningum

Sigurður Sverrir Stephensen lauk kandídatsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 1997 og stundaði nám í almennum barnalækningum við University of Connecticut í Hartford í Bandaríkjunum á árunum 2001-2004. Hann nam hjartalækningar barna á Barnaspítalanum í Lundi í Svíþjóð á árunum 2006-2013.  Sigurður Sverrir lauk doktorsprófi í barnahjartalækningum frá háskólanum í Lundi 2017. 

Sigurður Sverrir hefur starfað sem barnahjartalæknir á stofu frá 2014, fyrst á Læknastofum Vesturbæjar á Melhaga, síðan Domus Medica frá árinu 2018 og hefur nú flutt lækningastofu sína í Urðarhvarf 8, 203 Kópavogi.  

Önnur störf  

Sigurður Sverrir er sérfræðingur í almennum barnalækningum og hjartalækningum barna við Barnaspítala Hringsins á Landspítala frá 2013.