Skip to content
Home » Sigurður Einar Marelsson

Sigurður Einar Marelsson

Sérfræðingur í almennum barnalækningum og heila- og taugalækningum barna

Menntun og sérfræðinám

Sigurður lauk kandídatsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 2002 og stundaði nám í almennum barnalækningum við Háskólasjúkrahúsið í Lundi/Malmö, Skåne University Hospital. Hann lauk þar sérfræðinámi í heila- og taugalækningum og endurhæfingu barna árið 2012.

Önnur störf

Sigurður hefur samhliða starfi á Barnaspítala Hringsins starfað sem barnalæknir í Domus Medica.   Sigurður er sérfræðingur í heila- og taugalækningum barna við Barnaspítala Hringsins á Landspítala, og stundakennari í barnalæknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands.  Sigurður hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum barnalækninga með sérstaka áherslu á heila- og taugasjúkdóma. 

Móttaka sjúklinga

Þriðjudaga og fimmtudaga.

Tilvísanir

Ritarar sjá um tímabókanir eftir að tilvísun hefur borist frá heilsugæslulækni/heimilislækni. Einnig er hægt að bóka tíma í síma 563-1010 alla virka daga. Þeir sem eru með tilvísun frá heilsugæslulækni fá afslátt af komugjaldi.