Margrét Dís Óskarsdóttir
Barnataugalæknir
Menntun og sérfræðinám
Margrét lauk kandídatsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 2007 og stundaði nám í almennum barnalækningum við Háskólasjúkrahúsið í Umeå, Umeå University Hospital og lauk því 2015. Hún lauk sérfræðinámi í barnataugalækningum árið 2018.
Önnur störf
Að loknu sérnámi starfaði Margrét sem barnataugalæknir við Barnaspítala Hringsins þar til árið 2024 þegar Margrét tók við starfi á Landspítalanum sem yfirlæknir sérnáms. Því starfi fylgir einnig formennska í framhaldsmenntunarráði lækninga. Margrét er stundakennari í barnalæknisfræði við Háskóla Íslands við hjúkrunardeild. Margrét sinnir kennslu í sérnámi lækna þar má helst nefna kennslu í gæða og umbótastarfi, stjórnun og nýsköpun. Auk þess hefur Margrét lært og kennt handleiðslu fyrir lækna. Margrét hefur setið í stjórn félags sjúkrahúslækna og félagi námslækna í barnalækningum í Svíþjóð.
Móttaka sjúklinga
Miðvikudag
Tilvísanir
Ritarar sjá um tímabókanir eftir að tilvísun hefur borist frá heimilislækni, barnalækni, augnlækni, Geðheilsumiðstöð, Ráðgjafar og greiningarstöð og fleirum. Einnig er hægt að bóka endurkomu í síma 563-1010 alla virka daga. Fyrir styttri erindi tengt meðferð sem er í gangi er hægt að fá símatíma á mánudögum og miðvikudögum með því að hringja 563-1010. Athugið að skrópgjald er tekið þegar hætt er við tíma samdægurs eða ekki mætt í tíma sem er bókaður.
