Helga Elídóttir
Sérfræðingur í almennum barnalækningum, og ofnæmis- og lungnalækningum barna
Menntun og sérfræðinám
Helga lauk prófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2003. Hún lauk námi í almennum barnalækningum við Skånes Universitetssjukhus í Svíþjóð árið 2011 og í ofnæmislækningum barna árið 2013. Hún fór síðan í frekari sérhæfingu í barnalungnalækningum og tók evrópskt sérfræðipróf í þeirri grein. Helga er með doktorsgráðu (PhD) í barnalækningum frá Háskólanum í Lundi.
Störf
Helga var yfirlæknir barnalungnalækninga och Cystic Fibrosis (CF) Center barnasviðs við Skånes Universitetssjukhus á árunum 2014-2020. Hún flutti síðan heim til Íslands og starfar nú á Barnaspítala Hringsins. Helga gekk til liðs við Domus barnalækna í Urðarhvarfi í febrúar 2022. Helga er formaður félags íslenskra barnalækna og er í stjórn félags ónæmis- og ofnæmislækna.
Sérstök áhugasvið
Langvinnir lungnasjúkdómar, endurteknar lungnabólgur, langvinnur hósti, lungnasjúkdómur fyrirbura, meðfædd vandamál tengd öndunarvegum, astmi og ofnæmi
Vísindarannsóknir
Helga stundar rannsóknir tengdar barnalungnalækningum og er í samstarfi við erlenda háskóla og sjúkrahús vegna rannsókna á slímseigjusjúkdómi (cystic fibrosis).
Fræðsluefni
facebook hópurinn barnalæknirinn er öllum opinn og þar má finna ýmsa fræðslu. Heimasíða AO.is er einnig með fræðsluefni tengt ofnæmi, astma og exemi.
