Skip to content
Home » Gunnlaugur Sigfússon

Gunnlaugur Sigfússon

    Sérfræðingur í almennum barnalækningum og hjartalækningum barna

    Gunnlaugur Sigfússon lauk kandídatsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 1988 og stundaði nám í almennum barnalækningum við University of Connecticut í Hartford í Bandaríkjunum á árunum 1990-1993. Hann nam hjartalækningar barna við Children’s Hospital í Pittsburgh, Pennsylvania í Bandaríkjunum á árunum 1993-1997. Gunnlaugur lauk bandaríska sérfræðingsprófinu í hjartalækningum barna (American Board of Pediatric Cardiology) árið 1996.

    Gunnlaugur hefur starfað sem barnahjartalæknir á stofu frá 1997, fyrst á Læknastofum Vesturbæjar á Melhaga, síðan Domus Medica frá árinu 2018 og hefur nú flutt lækningastofu sína í Urðarhvarf 8, 203 Kópavogi. 

    Önnur störf 

    Gunnlaugur er sérfræðingur í almennum barnalækningum og hjartalækningum barna við Barnaspítala Hringsins á Landspítala frá 1997 og starfaði jafnframt í hlutastarfi á Astrid Lindgren Barnsjukhus / Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi frá 2011-2021.