Skip to content
Home » Gunnar Jónasson

Gunnar Jónasson

Sérfræðingur í almennum barnalækningum og ofnæmislækningum barna

Menntun og sérfræðinám

Gunnar lauk læknaprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands 1984 og stundaði sérnám í barnalækningum við háskólasjúkrahúsið Haukeland í Bergen til ársins 1991 þar sem hann hlaut sérfræðiviðurkenningu í barnalækningum árið 1991. Hann stundaði síðar sérnám í ofnæmislækningum barna við háskólasjúkrahúsið Ullevål í Oslo og hlaut sérfræðiviðurkenningu í ofnæmislækningum barna 1994. Hann lauk doktorsprófi í læknisfræði um astma hjá börnum árið 2000.

Störf

Gunnar hefur starfað sem sérfræðingur í barnalækningum og ofnæmislækningum barna frá 1994 í Oslo og í Reykjavík frá árinu 2000. Hann starfaði sem yfirlæknir (seksjonsoverlege) við Lungna- og ofnæmisdeild barna frá 96-97 og frá 98-2000 við Ullevål sjúkrahúsið í Oslo.  Hann var yfirlæknir Geilomo barnesykehus Geilo í Noregi frá 97-2000 og yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins frá 2002 – 2009.

Í dag starfar Gunnar sem sérfræðingur í barnalækningum og ofnæmislækningum barna í hlutastöðu á Barnaspitala Hringsins og sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur í sömu sérgrein  hjá Domus barnalæknum á læknastofu í Urðarhvarfi 8.

Vísindarannsóknir og kennsla

Gunnar hefur ritað og birt rannsóknir sínar frá árinu 1993 til 2021 í ritrýndum tímaritum í læknisfræði. Hann hefur kennt læknanemum og læknum í sérfræðinámi í Noregi og á Íslandi.

Sérstök áhugasvið

Bráðaofnæmi, frjó- dýra- og fæðuofnæmi, exem, barnaastmi,  áreynsluastmi og andnauð við áreynslu, fæðuóþol  og ofsakláði, hestamennska og hundahald.

Móttaka sjúklinga

Mánudaga og fimmtudaga milli kl. 09.00-16.00

Tilvísanir

Leitast er við að gefa öllum einstaklingum með tilvísanir frá læknum tíma innan tveggja til fjögurra vikna, en oftast mun fyrr. Allir geta bókað tíma hvort heldur sem er með eða án tilvísunar frá heilsugæslulækni í síma 563-1010 alla virka daga. Þeir sem eru með tilvísun frá heilsugæslulækni fá afslátt af komugjaldi.