Skip to content

Erla Þorleifsdóttir

Sérfræðingur í almennum barnalækningum  

Menntun og sérfræðinám
Erla lauk kandídatsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 2006 og stundaði nám í almennum barnalækningum við barnaspítalann Södra Älvsborg Sjukhus í Borås, Svíþjóð á árunum 2010 til 2015. Hún hlaut íslensk sérfræðiréttindi í barnalækningum í mars 2015. Tímabilið 2015 til 2020 starfaði Erla sem sérfræðingur í almennum barnalækningum við innkirtla-, og efnskiptalækningateymi Drotning Silvias barnaspítalans (Barn- och Ungdomssjukhus) í Gautaborg og Södra Älvsborg barnasjúkrahússins í Borås í Svíþjóð.

Störf 
Erla starfaði sem barnalæknir í Domus Medica frá því í október 2020 en hefur nú flutt lækningastofu sína í Urðarhvarf 8, 203 Kópavogi. Hún hefur síðan í byrjun janúar 2022 starfað einn dag í viku sem sérfræðingur í almennum barnalæknum við Heilsugæslunni á Akranesi og sinnir þar bæði ungbarnaeftirliti og almennri móttöku fyrir börn á aldrinum 0-17 ára. Hún hefur frá árinu 2019 einnig starfað sem sérfræðingur í hlutastarfi í almennum barnalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Sérstök áhugasvið
Vaxtarfrávik og næringarvandamál, offita, skjaldkirtilssjúkdómar, sykursýki, öndunarfærasýkingar, eyrnabólga, kviðverkir, hægðatregða, ungbarnaóværð (ungbarnakveisa) og svefnraskanir.

Fyrri stjórnunarstörf

  1. Kennslustjóri lækna á kandídatsári og sérnámslækna í barnalækningum og heimilislækningum við barnaspítalann Södra Älsvsborg Sjukhus í Borås, Svíþjóð frá janúar til júlí árið 2020. 
  2. Stjórnandi sykursýkis- og innkirtlateymis barna við Södra Älvsborg barnasjúkrahúsið í Borås, Svíþjóð tímabilið sept. 2016 til júní 2020.