Ari Víðir Axelsson
Er í Leyfi
Sérfræðingur í almennum barnalækningum og ofnæmislækningum barna
Menntun og sérfræðin
Ari Víðir lauk læknaprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands 1989 og stundaði sérnám í barnalækningum við háskólasjúkrahúsið Haukeland í Bergen en hann hlaut sérfræðiviðurkenningu í almennum barnalækningum árið 1997. Hann lagði stund á sérnám í ofnæmislækningum barna við háskólasjúkrahúsið Haukeland í Bergen og hlaut þar sérfræðiviðurkenningu í ofnæmislækningum barna árið 1999.
Störf
Ari Víðir hefur starfað sem sérfræðingur í barnalækningum og ofnæmislækningum barna í Reykjavík frá árinu 1999.
Í dag starfar hann sem sérfræðingur í ofnæmislækningum barna á göngudeild ofnæmissjúkdóma á Landspítala í hlutastarfi og sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur í sömu sérgrein lækninga hjá Domus barnalæknum í Urðarhvarfi 8.
Sérstök áhugasvið
Fæðuofnæmi, og rauðkyrningabólga í vélinda (ofnæmisbólgur í vélinda), exem, astmi, áreynsluastmi og andnauð við áreynslu.
Móttaka sjúklinga
Mánudaga kl. 08.30-16.00, þriðjudaga 08.30-12.30, fimmtudaga 12.00-16.00 og föstudaga 08.30-12.30.
