Berglind Jónsdóttir
Sérfræðingur í almennum barnalækningum og innkirtla- og efnaskiptalækningum barna
Menntun og sérfræðinám
Berglind lauk kandidatsprófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 2006. Hún lauk sérnámi í almennum barnalækningum við háskólasjúkrahúsið á Skáni (Skånes Universitetssjukhus) í Svíþjóð árið 2014 og sérnámi í innkirtla- og efnaskiptalækningum barna við sama spítala árið 2017. Berglind lauk doktorsprófi í innkirtlalækningum barna frá Háskólanum í Lundi Svíþjóð árið 2017.
Störf
Berglind starfaði á Barnaspítala háskólasjúkrahússins á Skáni (Skånes Universitetssjukhus) frá 2009- 2019 en þá hóf hún störf á Barnaspítala Hringsins þar sem hún starfar nú. Berglind hóf störf hjá Domus barnalæknum í apríl 2025.
Sérstök áhugasvið
Vöxtur og kynþroski. Skjaldkirtilssjúkdómar. Sjúkdómar í nýrnahettum og heiladingli. Sykursýki.
Vísindarannsóknir
1. Sjálfsónæmissjúkdómar í skjaldkirtli, of- og vanvirkni
2. Tengsl sjálfsónæmissjúkdóma í skjaldkirtli, sykursýki af gerð 1 og selíak sjúkdóms
3. Áhrif umhverfisþátta á þróun sykursýki af gerð 1 í börnum og unglingum
Tilvísanir og tímabókanir
Móttaka er föstudaga frá kl. 08:00-16:00. Bóka má tíma hvort heldur sem er með eða án tilvísunar frá heilsugæslu í síma 563-1010 alla virka daga.
